Næsta skref í lækningu á sál og líkama
9 Víddir bjóða upp á 9D öndunartækni sem mætti segja að sé næsta skrefið líkamsmiðaðri lækningu. 9D BreathWork er byltingarkennd öndunarmeðferð þar sem notast er við sómatíska nálgun og einstaka hjóðtækni sem hjálpar þér að ná enn dýpra inn í undirheim meðvitundarinnar.

Öndunartæknin sem 9 Víddir bjóða upp byggir á 9D tækni sem sameinar forna tækni í tengslum við öndunaræfingar og nútíma læknisfræði og notast meðal annars við það sem kallast tvíheyrnataktur eða binaural beats á ensku.
Tæknin nýtir boð til undirmeðvitundarinnar og hjálpar við að endurforrita hana. Hluti af tækninni er að nýta raddbeitingu sem notuð eru við dáleiðslu og hjálpar okkur að komast í ástand þar sem við erum móttækilegri fyrir breytingum og mótun nýrra taugaboða.
Í 9D öndun eru líka mörg lög af sérstökum hljóðum og forritun undirmeðvitundarinnar.
Það er því óhætt að segja að Öndunin er margvíð.
Öndunartæknin hefur jákvæð áhrif varðandi streitu, þunglyndi og kvíða. Hún hjálpar okkur að fara dýpra í sjálfskoðuninni og vinna með ómeðvituð viðhorf, viðbrögð og innri sögur sem geta verið að halda aftur af okkur. Aðferðir hjálpar okkur að losa um tilfinningar og upplifa meiri kraft, gleði og þakklæti í lífinu. Öndunarvinna af þessu tagi hefur reynst áhrifarík gegn streitu, kvíða og þunglyndi.

Einstaklingstímar - Hóptímar - Zoomtímar
Hvað hentar þér best? Þú getur komið í einstaklingstíma eða mætt í hóptíma sem við bjóðum upp á víða um landið og á netinu.

Zoomtímar
Þú kemur þér vel fyrir þar sem þér hentar og mætir í bókaðan tíma í gegnum Zoom fjarfund. Hagkvæmt og þægilegt fyrirkomulag sem allir geta nýtt sér, hvort sem þú vilt meiri kraft eða innri frið, þá eru þessir tímar fyrir alla.

Hóptímar
Kraftmiklir tíma þar sem þú færð persónulegan stuðning og upplifun af ótrúlegu samfélagi sem myndast í kringum öndunartíma. Öndunarferðalögin miða ýmist við að losa um tilfinningar, auka vellíðan og gleði, laða fram kraftinn og orkuna eða að ná djúpri slökun og ró inn í líkamann og taugakerfið.

Einstaklingstímar
Tímar sem sniðnir eru að þínu persónulega ferðalagi. Hentar þegar þú vilt fá hámarksárangur af öndunarvinnu og einstaklingsbundinn stuðning.
Hverjir eru kostirnir við að fara í öndunartíma?
Öndunartímar hjá 9 víddum hafa fjölþætt áhrif og upplifanir þátttakenda sýna að öndunartími getur snert á öllum sviðum lífsins, hvort sem það er sálræn líðan, hugarfarsleg endurforritu, líkamleg- eða andleg líðan.
Minni streita
Regluleg öndunaræfing lækkar streitustig verulega með því að virkja slökunarviðbrögð líkamans, sem hjálpar til við að draga úr áhrifum stöðugs bardaga- eða flýja ástands, sem er dæmigert í mörgum starfsaðstæðum
Tilfinningalegt jafnvægi
Með því að stuðla að ró og vellíðan hjálpa öndunaræfingar okkur fólki að stjórna tilfinningum sínum á skilvirkari hátt, draga úr tilfellum viðbragðshegðunar og bæta samskipti í vinnunni.
Aukin fókus
Öndunaræfingar auka andlegan skýrleika og einbeitingu, sem gerir okkur kleift að framkvæma betur verkefni sem krefjast viðvarandi athygli.
Meiri orka
Regluleg öndunaræfing lækkar streitustig verulega með því að virkja slökunarviðbrögð líkamans, sem hjálpar til við að draga úr áhrifum stöðugs bardaga- eða flýja ástands, sem er dæmigert í mörgum starfsaðstæðum
Betri svefn
Regluleg öndunaræfing bætir svefngæði, leiðir til meiri endurnærandi hvíldar, sem aftur leiðir til mun meiri getu til gagnrýninnar hugsunar, bestu virkni og dýpri ánægju, bæði í vinnu og heima.
Aukin sköpunarkraftur
Með því að draga úr streitu og hreinsa hugann getur öndunaræfingar opnað nýjar leiðir fyrir skapandi hugsun, sem hugsanlega leitt til nýstárlegra lausna og hugmynda.
Seigla
Öndunarþjálfun veitir einstaklingum verkfæri til að takast á við álag á vinnustað með meiri seiglu, draga úr áhrifum streitu og koma í veg fyrir kulnun.
Bætt heilsa
Öndunaræfingar styðja almenna heilsu með því að draga úr streitutengdum kvillum, svo sem háþrýstingi og langvinnum verkjum sem leiðir til færri veikindadaga.

Í öruggum höndum
Það er mikilvægt og gott að finna öryggi þegar kemur að því að vinna með andlega og líkamlega heilsu okkar. Við þekkjum það vel af eigin raun hversu miklu máli það skiptir að leiðbeinendur og ráðgjafar í slíkri vinnu hafi bæði menntun og reynslu sem skiptir máli til þess að upplifa öryggi og ná árangri í slíkri vinnu.

Valdimar Þór Svavarsson
Öndunarþjálfi og ráðgjafi
Valdimar hefur starfað við ráðgjöf og meðferðarvinnu til margra ára. Hann er með háskólamenntun á sviði viðskipta og félagsráðgjafar, er með sérfræðimenntun í meðferðarvinnu vegna áfalla og hefur verið að nota og læra öndunartækni frá árinu 2022. Valdimar hefur um árabil starfað við ráðgjöf og meðferðarvinnu og er umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins.
Berglind Magnúsdóttir
Félagsráðgjafi, MA
Berglind er félagsráðgjafi, er með sérfræðimenntun í áfallameðferð og hefur lokið hæsta stigi af öndunarmenntun hjá Dr. Judith Kravitz sem kallast Transformational breath. Berglind hefur starfað við einstaklingsráðjöf og meðferð í meira en áratug og hefur notað öndunartækni sem hluta af sinni meðferðarnálgun í mörg ár.
Í nokkrum undantekningatilvikum mælum við með að breyta öndunartækninni sem verið er að að nota eða jafnvel að bíða með að fara í öndunartíma. Smelltu á hnappinn hér að neðan ef þú telur að þú eigir við vanda að stríða sem gæti hindrað þig í að taka þátt.
Ummæli nokkurra þátttakenda

„Hefðum aldrei trúað því hvað öndunin hefur mikil áhrif. Mælum 100% með.“
Stebba og Bjössi

„Eftir tímann svaf ég betur en ég hef gert í mörg ár“
Ása H.

„Ég var örugg allan tímann sem gaf mér rými til að fara í gegnum svo margt sem skipti mig miklu máli. Lífbreytandi tími“
Berglind

„Magnað hvað Zoom öndunartími getur haft góð áhrif. Ég fann fyrir meiri kraft en líka meiri ró eftir tímann“
Guðni Þór
Tímar á næstunni

ZOOM tími
Slökun og næring
15. febrúar kl. 21:00
Hvað er gott að hafa í huga fyrir tímann? Í þessum tíma sem heitir "The Stillness Code" förum við í róandi ferðalag til að losa um spennu og tengjast innra frið, jafnvægi og ró. Þú færð sendan póst með ZOOM hlekk á öndunartímann. Gott er að gera ráð fyrir um 90 mínútur í heildina, öndunin er í um klukkustund. Það eina sem þú þarft er sími, spjaldtölva eða tölva og vera með heyrnatól til að hlusta á tímann (mikilvægt að vera með heyrnatól fyrir bestu upplifun og árangur). Best er að vera í þægilegum fatnaði sem veitir þér hlýju. Það er mikilvægt að velja góðan stað til að liggja, hvort sem það er á dýnu á gólfi, í sófa eða rúmi og tryggja næði á meðan á öndun stendur. Það er líka hægt að sitja í hægindastól sem hægt er að halla bakinu. Gott er að hafa púða undir höfuð og jafnvel undir fætur/hnésbót til að lyfta hnjám aðeins upp. Það getur verið gott að hafa teppi mörgum finnst gott að nota augngrýmu og við mælum hiklaust með því. Þá er einnig gott að vera með vatnsbrúsa með sér. Í sumum ferðalögum er mælt með að gefa frá sér gott hljóð á sérstökum tímapunktum og þess vegna er gott að hafa lítinn púða með sér sem hægt er að setja yfir munninn á meðan. Við hlökkum til að vera með þér.

Selfoss - Eyrarvegur 27
Kraftur og losun
19. febrúar kl. 17:00 - takmarkaður fjöldi
Hvað er gott að hafa í huga fyrir tímann? Í þessum tíma sem heitir "Unleash Your Power" ætlum við að vekja kraftinn innra með okkur um leið og við losum okkur við fyrirstöðurnar. Gott er að gera ráð fyrir um 90 mínútur í heildina, öndunin sjálf er um klukkustund. Best er að vera í þægilegum fatnaði sem veitir þér hlýju. Þú færð búnað á staðnum sem eru dýna, heyrnatól og púði undir höfuð. Sumir vilja koma með sína eigin dýnu og púða, jafnvel teppi og augngrýmu og við mælum hiklaust með því. Þá er einnig gott að vera með vatnsbrúsa með sér. Í sumum ferðalögum er mælt með að gefa frá sér gott hljóð í útöndun á sérstökum tímapunktum og þess vegna er gott að hafa lítinn púða með sér sem hægt er að setja yfir munninn á meðan. Við hlökkum til að vera með þér.


Breyttu því hvernig þú andar og þú breytir lífi þínu
Judith Kravitz

Vertu með okkur í ferðalaginu
Settu netfangið þitt hér fyrir neðan svo við getum sent þér skemmtilegar upplýsingar sem gætu vakið áhuga þinn.






